Gleðilega þjóðhátíð

3 skilabod Skrifadi Sól - June 17th, 2008

Fínt hús


Þetta hús, sem er sennilega ekki mikið minna en íbúðin okkar…kannski aaaðeins minna, stendur inn á Reykjavíkurflugvelli. Það er eitthvað við appelsínugula litinn og kassa mynstrið sem gerir þetta hús svo skrítið og fínt, sérstaklega ef þú ímyndar þér að það standi eitt út á miðju túni einhvers staðar út í sveit í stað flugvallar :)

Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - June 15th, 2008

Vanillusykur


Við héldum að Opal væri komið í nýjar umbúðir en þá var það bara vanillusykur að reyna að vera Opal pakki.

Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - June 11th, 2008

Besta veggjakrotið


Siggi gerði þetta samt ekki, hann er bara til að sýna stærðina haha :)

1 skilabod Skrifadi Sól - May 25th, 2008

Sumarhjól


Ég hef lengi látið mig dreyma um að eignast alvöru stelpuhjól, svona gamaldags með mjóum dekkjum og stöngina niðri. Sá draumur varð að veruleika um helgina þegar við Siggi skelltum okkur upp í bústað fjölskyldunnar hans í Kjósinni og ákváðum að gera upp gamla hjólið hennar Nönnu sem er yfir 50 ára gamalt. Það var á sprungnum dekkjum og orðið ansi ryðgað, en við keypum nýjar gjarðir og ný dekk og Siggi handyman var ekki lengi að vippa nýju dekkjunum á. Síðan tókst mér að pússa nánast allt ryðið af og smurði hjólið.

Svona lítur gripurinn út eftir andlitslyftinguna!

Þetta hjól er að sjálfsögðu með enga gíra og ég er ennþá að venjast því að það eru ekki handbremsur! Við Siggi hjóluðum í vinnuna í dag, en hann eignaðist gamla fjallahjólið mitt sem er svart með strákastöng, handbremsum, engu bretti og 21 gír :)

2 skilabod Skrifadi Sól - May 5th, 2008

Afmælistölvutaska


Í tilefni þess að ég er orðin 27 ára í dag fórum við Siggi í leiðangur og var keypt m.a. ný tölvutaska, en það var löngu orðið tímabært. Gamla taskan var þannig að þegar ég setti hana á mig þá sást bara taskan, svo var hún líka allt of þung að bera, gat sett allt of mikið af dóti í hana. Á myndinni að ofan má sjá muninn á þeirri gömlu og nýju, en nýja taskan er komin með fínu barmmerkin sem var á gamla greyinu.

1 skilabod Skrifadi Sól - May 2nd, 2008

Gleðilegt sumar!

1 skilabod Skrifadi Sól - April 24th, 2008

Fyndin dýr

Animals save the planet eftir Aardman animation.

Skildu eftir skilabod Skrifadi Siggi Orri - April 22nd, 2008

Project Iceland orðið að bók!


Við fengum heimsókn á Grettisborg í dag en það var hann Charlie með fyrsta eintakið af Project Iceland. En við Siggi erum búin að vera að vinna saman við að setja hana upp með ljósmyndaranum Charlie Strand. Bókin á að vera komin í búðarhillur eftir ca. mánuð en hér að ofan má sjá smá preview af henni :)

1 skilabod Skrifadi Sól - April 21st, 2008

Ammli!


Hún Birna á afmæli í dag! Til hamingju rúsínubollan okkar!

Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - April 20th, 2008

Previous Posts