Siggi og Sól

Reiði Lich kóngsins

Já, auðvitað fórum við eins og allir hinir Wow lúðarnir í leiðangur, síðastliðinn miðvikudag klukkan 23:55, að kaupa okkur Wrath of the Lich King. Við byrjuðum á því að fara í Nexus og okkur til mikillar furðu voru ekki nema 6 manns í röð þar. En þá var Nexus einungis að selja leiki sem höfðu verið pantaðir áður (flestir fyrir meira en tveim vikum síðan) svo við urðum að snúa okkur annað. Við ákvaðum því að fara í bíltúr í Kópavoginn og prufa Elko. Þegar þangað var komið var heljarinnar röð af fólki sem stóð út úr dyrum. Við ákváðum að láta okkur hafa það og sjá hversu hratt röðin myndi hreyfast. Kom þá í ljós að í röðinni voru þeir sem höfðu forpantað leikinn, en þar sem við höfðum ekki gert það fórum við bara inn í sjálfa verslunina þar sem 5 manns stóðu í röð. Við fórum inn, keyptum leikinn og vorum komin aftur út eftir 3 mín. Það greinilega borgaði sig að vera slacker þarna hehe :)

3 skilaboð - November 14th, 2008

London – Reykjavík

Það hefur ýmislegt drifið á daga okkar hér í London undanfarnar þrjár vikur. Við byrjuðum í skólanum og kláruðum fyrsta verkefnið okkar sem var tveggja vikna verkefni með
tveim yfirferðum, einni milliyfirferð og síðan lokayfirferð og gekk bara mjög vel hjá okkur báðum :)

Það er ekki auðvelt að vera námsmaður í London þessa dagana og hvað þá íslenskur! Við erum búin að vera að rembast við að lifa á ryki og lofti með tóma vasa en það er hægara sagt en gert þannig að hér með tilkynnist að við höfum tekið þá ákvörðun að snúa aftur heim til hryðjuverkalandsins. Við erum búin að setja stopp á námið okkar, ætlum að sjá til hvernig málin þróast og borða á meðan íslenskan snjó.

Annars þá snjóaði í London í gærkvöldi og er það víst í fyrsta sinn í 70 ár sem það snjóar hérna í október, mikil tíðindi það! Við ætlum að láta þetta vera síðustu bloggfærsluna okkar frá London en skellum hér inn nokkrum myndum af því sem við höfum verið meðal annars að bralla.


Það sem stendur upp úr hjá okkur er þegar Sonja og Gísli komu til London í einn dag, þau komu eins og bjargvættir og gáfu okkar að borða, það kvöldið var í fyrsta sinn í langan tíma sem við vorum að springa úr seddu haha!

Þau fóru með okkur á æðislegan japanskan veitingarstað þar sem við sátum á gólfinu við borðið, en samt ekki, þar sem fæturnar fóru ofan í holu undir borðinu þannig að þú þurftir ekki að sitja í lótusstellingu. Við hámuðum í okkur fullt af gómsætu sushi og japönskum réttum nammi namm….og síðan var farið á uppáhalds staðinn hans Gísla, Haagen Dazs!


Fórum á Haagen Dazs veitingarstað þar sem við fengum ekkert smá flotta ís-eftirrétti, þarna má sjá mynd af ísnum sem Sól fékk sér, já hann var alveg jafn gómsætur og myndin segir til um hehe :)

Verðum líka að taka það fram að Gísli stoppaði aftur í London síðar og ákvað að gefa okkur aftur að borða, heppin við! Þá fór hann með okkur á tælenskan veitingastað þar sem við fengum aftur að háma í okkur og auðvitað var endað á Haagen Dazs veitingarstaðnum þar sem við slógum met í ísáti. Takk fyrir okkur Gísli og Sonja! :)


Við skelltum okkur eina helgina á Portobello markaðinn að skoða skrýtið og skemmtilegt dót, látum nokkrar myndir fylgja þaðan.


Þar var búð sem seldi heilar hillurnar af Matryoshkum…


…ótrúlega flott að sjá þær svona margar raðaðar saman.


Hérna var nóg úr að velja af bollastellum.


Og hérna líka…


Fundum þessa fallegu bók þar sem myndirnar voru límmiðar sem að fylgdu víst með sígarettupökkum í gamla daga.


Síðan rákum við augun í bók sem vakti áhuga okkar….


Tatamm! Íslensk bók, já takk! Við fengum leyfi hjá manninum sem átti básinn að taka myndir af bókinni en hann bað okkur samt vinsamlegast um að vera ekki að rífast í sér yfir vandræðunum hjá íslensku bönkunum, hann hefði ekkert með það að gera.


Marbles, okkur þykir svona kúlur voða fínar.


Fundum síðan töfralampa, en það gerðist ekkert þegar við nudduðum hann, kom enginn andi sem vildi gefa okkur fullt af pening.

Segjum þetta gott af London sögum, þetta blogg verður aftur að gamla blogginu okkar, endilega haldið áfram að fylgjast með því :)

6 skilaboð - October 29th, 2008

Klukk

Við vorum klukkuð af Hemma og þurfum því að svara 10 spurningum um okkur :)

1. Fjögur störf sem við höfum unnið um ævina:
- McDonalds þræll (Siggi)
- Umönnun á Kópavogshæli (Siggi)
- Sjoppudama (Sól)
- Leikskólaleiðbeinandi (Sól)

2. Fjórar íslenskar bíómyndir sem við höldum upp á:
- Englar Alheimsins
- Veðramót
- Sveitabrúðkaup
- Þungur hnífur!!!

3. Fjórir staðir sem við höfum búið á:
- Vesturbærinn í Kópavogi
- Vesturbærinn í Reykjavík (westsiiide!!)
- Manhattan New York
- London

4. Fjórir staðir sem við höfum heimsótt í fríum:
- Haag (Siggi)
- Jamaiica (Sól)
- Zurich (Siggi og Sól)
- Orgrimmar (Fifill og Gerdur)

5. Fjórir sjónvarpsþættir sem okkur líkar:
- The Family
- Little Britain
- South Park
- Cutting Edge

6. Fjórar síður sem við skoðum daglega:
- mbl.is
- myextralife.com
- cartoonbrew.com
- drawn.ca

7. Fernt matarkyns sem við höldum upp á:
- Kjúklingur með kasjúhnetum (Siggi)
- HamborgarAhryggur (Siggi)
- Súri kjúllinn hennar mömmu (Sól)
- Jólarjúpur (Sól)

8. Fjórar bækur/blöð sem við höldum upp á/lesum oft:
- Nirmal Fragrance (Siggi)
- Animator’s Survival Kit (Siggi)
- Tinnabækurnar (Sól)
- Ísfólkið (Sól)

9. Fjórir staðir sem við vildum vera á núna:
- Upp í bústað í ullarsokkum að spila Wow
- Sólarströnd
- Heima!!!! /snökt
- Universal Studios!

10. Fjórir bloggarar sem við eigum að klukka:
- Hörður
- Sonja
- Raggi
- Harpa og Vignir

Myndin efst er af kisu sem varð á vegi okkar um daginn, en hann er fyrsti kötturinn sem við höfum séð lausan út á götu, annars er allt vaðandi í hundum. Náðum að fanga þennan fína svip sem hann setti upp þegar við fórum að tala við hann.

Næsta blogg verður uppfærsla á dvölinni okkar hér í London :)

3 skilaboð - October 20th, 2008

Skólinn byrjaður

Fyrsti skóladagurinn var síðastliðinn mánudag, við vorum mætt klukkan 10:30 í eina skólastofuna á Catton Street þar sem við hittum samnemendur okkar í MA Communication design og kennarana. Kom í ljós að þessi deild er með ca. 60 nemendur og skiptist hún í 4 pathways; graphic design, digital media, photography og illustration. Fjöldi nemenda er mismunandi fyrir hvert pathway, flestir eru í graphic design og fæstir í digital media, illustration sem er okkar pathway er með ca. 15 nemendur alls. Það er einn course director yfir deildinni sem er kona að nafni Jo Morrison og síðan er einn aðal kennari sem sér um hvert pathway. Sá sem er yfir Illistration heitir Andrew Foster en við erum ekki búin að hitta hann ennþá, hann var fjarverandi þennan dag að vesenast í einhverju öðru víst.


Þegar við mættum fengum við lítinn hvítan límmiða hvert sem við áttum að skrifa nafnið okkar á. Síðan vorum við látin kynna okkur eitt í einu, þar sem við stóðum upp og sögðum nafn og hvaðan við værum og límdum síðan miðann okkar inn á heimskort sem hékk á vegg í stofunni.

Eftir það var kynnt fyrir okkur námsárið og við fengum kennsluáætlun og fyrsta verkefnið okkar afhent. Við fengum reyndar 6 mismunandi verkefni en við áttum að velja okkur eitt sem við viljum vinna, verkefnin eru annað hvort sniðin að graphic design, digital media, photography eða illustration og ef þig langar að gera eitthvað sem er ekki illustration verkefni geturðu prófað eitthvað annað.


Það var merkilegt að sá hversu fjölþjóðleg þessi deild er, en fjöldi nemenda frá Englandi eru kannski ca. 5 af 60. Krakkarnir koma m.a. frá Bandaríkjunum, Mexíkó, Brasilíu, Argentínu, Þýskalandi, Frakklandi, Portúgal, Spáni, Danmörku, Rússlandi, Ítalíu, Grikklandi, Tyrklandi, Kína, Kóreu, Japan bara svo að eitthvað sé nefnt.


Þetta er stofan sem við hittumst í, þarna voru reyndar allir farnir en Siggi sést pósa í sófanum út í enda :)


Í lokin var okkur skipt í tvo hópa og var farið með okkur í skoðunarferð um skólann þar sem við fengum að sjá aðstöðuna og hvað væri í boði. Skólinn er með rosa flotta prent / þrykk aðstöðu og letursetningar stúdío svo eitthvað sé nefnt, annars þá munum við taka myndir af þessu öllu saman við tækifæri og skella inn á bloggið :) Hér má sjá nokkra af krökkunum úr deildinni.


Og fleiri krakkar, þarna má reyndar sjá líka einn kennara sem er yfir ljósmyndadeildinni, hann stendur hægra meginn við hurðina í brúnni peysu :)


Síðan hittum við Magga sem er með okkur í skóla, hann er í sömu deild og við en í
digital media.


Músagildra sem var búið að setja upp fyrir framan skrifstofuna í skólanum hehe

Þessi vikuna erum við búin að vera að fara hingað og þangað þar sem skólastarfið og kennslan hefur verið kynnt fyrir okkur, dagskráin er búin að vera þétt og mikið af nýjum hlutum sem við höfum verið að innbyrgða og melta :) Á miðvikudaginn héldu allir nemendur 3 mínútna kynningu þar sem við áttum að sýna 5 myndir af eigin vali og segja aðeins frá okkur. Það gekk bara mjög vel og var gaman að sjá hvað hinir eru búnir að vera að gera. Í dag byrjuðum við að vinna í fyrsta verkefninu okkar, fyrri yfirferðin verður á mánudaginn eftir helgi og lokayfirferðin á mánudaginn þar á eftir.


Skellum þessari mynd inn í lokinn, sem er kannski vel við hæfi, en við sáum þessa rosalega flottu peningaseðla í British Museum í dag. Annars erum við Siggi farin að efast um að það sé öruggt að láta það uppi út á götu að við séum íslendingar, en Ísland er ekkert voðalega ofarlega á vinsældarlistanum hjá Bretum í dag…ehemm

1 skilaboð - October 9th, 2008

Enrolment day


Í dag var skólasetningin í CSM og mættum við fersk og vel greidd klukkan 9:50 um morguninn í aðal húsnæði skólans á Southampton Row með öll gögn sem átti að koma með; vegabréfið okkar, bréfið frá skólanum um samþykkta umsókn, bréfið með upplýsingum um skólasetninguna, BA skírteinið frá LHÍ, TOEFL einkunnablaðið, kvittun fyrir greidd skólagjöld og svartan penna.


Okkur var vísað í stofu G12 þar sem við fengum eyðublað sem átti að fylla út. Þar var spurt um ýmislegt eins og hvort við værum Irish white, British white eða Other white, og ef other white, þá hvernig nákvæmlega? Við sögðum bara icelandic white :P


Þar var líka spurt um fyrsta og annað tungumál. Nema bara að þarna hefur læðst inn innsláttarvilla svo að þýðingin var orðin allt önnur hahah…


Eftir að hafa klárað að fylla út eyðublöðin skiluðum við þeim inn ásamt ljósritum af pappírunum sem við komum með og fengum miða til að sækja stúdentaskírteinið okkar. En þá fannst ekkert skírteini handa Sól, það var þá ekki búið að græja það ennþá, þrátt fyrir að passamyndirnar okkar beggja voru sendar út í sama umslagi. Það hefur sannað sig að Sól og skírteini eiga ekki vel saman, það eru eflaust einhverjir sem lesa þetta sem vita hvað við meinum haha :)


En þá var haldið til Catton Street, þar sem skrifstofan fyrir Communication Design nemendur er staðsett, til að redda skírteinis bögginu. En þá var lokað og átti ekki að opna fyrr en klukkan 14:00 sem þýddi að við höfðum nánast einn og hálfan tíma til að drepa.


Þannig að við fórum og fundum okkar næsta PRET samlokustað, sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Þar er hægt að kaupa djúsí samlokur með fullt af mismunandi tegundum af áleggi, alvöru ginger beer og feita muffin…nammi namm :)


Eftir það fórum við í næsta almenningsgarð sem við sáum og fengum okkur sæti á bekk í sólinni. Vorum ekki búin að sitja þar lengi þegar það byrjaði að hellirigna og þurftum við að hlaupa undir næsta tré til að verða ekki gegndrepa. Stóðum þar í hnapp með öðru fólki…


…og þessari dúfu sem vildi heldur ekki blotna :)


Á endanum tókst okkur að redda síðan skírteininu handa Sól sem var prentað út í einum grænum þegar við mættum aftur á skrifstofu skólans. Húrra fyrir því!

Á mánudaginn næsta byrjar síðan kennsla, verður spennandi að sjá hverjir eru með manni í bekk! ;)

3 skilaboð - October 1st, 2008

Nágrannarnir og bretamatur

Það eru þrjár íbúðir í stigaganginum okkar, íbúð A sem er á ground floor, íbúð B sem er íbúðin hennar Evu sem er á first floor og síðan íbúð C sem er á second floor. Á efstu hæðinni býr kona sem við höfum aldrei séð heldur bara heyrt í. Í hvert sinn sem konan er í stigaganginum, þá annað hvort á leiðinni úr íbúðinni eða á leiðinni upp til sín þá er hún að argast út í krakkana sína eða hundinn. Ef börnin eru ekki með læti þá er hundurinn geltanti og konan er stöðugt að skammast í þeim til skiptis. Það besta átti sér samt stað í nótt, klukkan hálf 5 um morguninn, þá hafði konan á efri hæðinni greinilega verið að djamma einhvers staðar og ákveðið að taka nokkra með sér heim í eftirpartý. En þetta hljómaði samt ekki eins og nokkrir heldur heill herskari af fólki, eins og hún hefði hreinlega tekið allt partýið sem hún var í með sér heim. Fólkið þrammaði í stiganum eins og fílahjörð og þegar það var loksins komið upp þurftu einhverjir að fara niður…og síðan aftur upp…og aftur niður….og aftur upp. Og viti menn, konan gat auðvitað ekki setið á sér lengi og dró einn gestanna fljótlega fram á gang og fór að rífast og skammast í honum! Okkur Sigga fannst þetta nú bara fyndið þrátt fyrir að þetta héldi fyrir okkur vöku og hlógum að þessu daginn eftir :)

Á hæðinni fyrir neðan okkur býr gömul kona, Eva hefur sagt okkur frá henni þar sem þær eru ágætist vikonur í dag og býðst Eva stundum til að kaupa inn handa henni. Gamla konan er víst fyrrverandi fyrirsæta sem lifði frekar skrautlegu lífi þegar hún var ung en er orðin eitthvað hálf skrítin í dag og virðist aldrei fara út úr húsi. Fyrstu nóttina okkar í íbúðinni sváfum við lítið því að sjónvarpið hjá gömlu konunni var í gangi alla nóttina og langt fram á dag daginn eftir og það hátt stillt að við vissum alltaf hvað var í sjónvarpinu. Við vorum farin að ímynda okkur að konan hafði dáið með sjónvarpið í gangi og að enginn vissi af því þannig að við hringdum í Evu og báðum hana um að tjékka á henni. Kom þá í ljós að gamla konan hafði verið andvaka um nóttina vegna þess að kisan hennar var veik. Hún á voða sæta kisu sem við sjáum stundum út í bakgarðinum, en bara þegar það er sól. Þá kemur hún út og sólar sig.


Hún situr alltaf eða liggur ofan á þessu frauðplasti þegar hún er í bakgarðinum.


Kisan var mikið að spá í hvernig hún gæti komist upp í gluggann til okkar þegar við tókum þessar myndir :)

Og út í allt annað…við keyptum okkur alvöru breskan mat um daginn!


Jaffa cakes, custard og sausages!

Við erum búin að vera að drekka Ginger beer og borða Jaffa cakes í öll mál en það var tilboð í Morrisons, tveir pakkar af Jaffa cakes (sem innihalda 3 kassa) á verði eins! hehe
Og við urðum að prufa að fá okkur alvöru custard…þetta er út um allt og greinilega aðal málið hér í Englandi, en hér fá menn sér heitan súkkulaði pudding með custard ofan á.

Í kvöld verður síðan einn af þjóðarréttum Breta í kvöldmatinn hjá okkur, “bangers and mash” sem er sausages með kartöflumús og brúnni sósu. Pulsurnar eru ekki eins og heima, þær eru hráar þannig að þær eru linar, þær eru í raun bara kjötfars inn í rúllu. Verður spennó að prufa þetta :) Síðan er víst næst á dagskrá að prufa “fish and chips”.

Síðan má ekki gleyma snakkinu!


Bretar er mesta snakk þjóð í heimi og hér er hægt að kaupa snakkpoka sem eru nánast á stærð við svarta ruslapoka! Og það stendur alltaf “better for sharing” á þeim stóru haha

Þangað til næst! :D

2 skilaboð - September 27th, 2008

Íbúðin hennar Evu

Það eru liðnar núna u.þ.b. 2 vikur síðan við komum til London og það styttist óðum í að skólinn byrjar, en skólasetningin er 30.september. Við erum búin að vera að skoða fleiri íbúðir, eins herbergja íbúðir í zone 1 og 2 en ekki ennþá fundið þá réttu. Það var reyndar ein sem við skoðuðum sem var æðisleg og okkur langaði mjög mikið til að leigja, eins herbergja íbúð á þriðju hæð í fjölbýli með húsgögnum, frábær staðsetning í zone 2 með strætóstoppi beint fyrir utan…en þá var eitthvað fólk sem hafði skoðað íbúðina á undan okkur sem var búið að taka hana :( En svona er þetta, fyrstu kemur, fyrstur fær. En þetta gaf okkur samt von um að það virðist vera hægt að finna íbúð sem er eins og við látum okkur dreyma um :) það er nóg af íbúðum í boði, það er bara spurning um að lenda á þeirri réttu og vera fljótur að því!

En við erum búin að hafa það alveg yndislegt hérna í íbúðinni hennar Evu, sú íbúð er rosalega flott og kósí. Hér koma nokkrar myndir frá henni og götunni sem hún er í.


Bláa hurðin er útidyrahurðin hjá okkur, íbúð B :)


Svona lítur húsið út.


Hér má sjá eldhúsborðið, þarna sitjum við og borðum morgunmat eða kvöldmat. Erum orðin rosalega dugleg að elda, elduðum inverskan kjúklingarétt í gær…mmmm


Séð út um eldhúsgluggann inn í bakgarðinn. Þarna má líka sjá blómin hennar Evu sem Siggi sér um að vökva, Sól má það ekki því að blóm lifa ekki lengi í hennar umsjá.


Út um eldhúsgluggann sjáum við líka stofugluggann hjá nágrannanum okkar, við getum alltaf séð hvenær hann er að horfa á sjónvarpið. Sést ennþá betur á kvöldin….það er ekki það að við séum að gluggagægjast, glugginn á eldhúsinu er bara svo stór og gluggi nágrannans er útsýnið :)


Einn daginn sagði Siggi: “Glætan! Það er beinagrind undir rúminu okkar!” Hljómaði eins og grín en honum var alvara. Frekar fyndið að vita af henni undir rúminu, núna er ástæða til þess að vera myrkfælinn á næturnar og þora ekki að kíkja undir rúmið hehe :)


Það er ósýnilegur maður sem býr með okkur í íbúðinni, en hann er í hinu svefnherberginu sem við sofum ekki í. Hann situr allan daginn upp í rúmi og reykir sígarettur, en það er alltaf dauf reykingarlykt inn í herberginu. Skugginn hans sést mjög greinilega á þessari mynd, sérstaklega í speglinum!


Þetta er gatan okkar, Caledonian road.


Og þetta er local shoppið okkar, Londis, þar sem við kaupum vínberjadjús og dr.pepper.


Urðum að setja þessa mynd með, hún er tekin inn í Morrisons, matvöruverslunin þar sem við kaupum alltaf allan mat. Af hverju að fá sér Múslí þegar þú getur fengið Fruss…lí?


Þessi mynd er tekin út um stofugluggann.


Undergroundið okkar, ef vel er að gáð má sjá ljósin í lestinni sem er að koma inn í göngunum.


Fórum í labbitúr um daginn inn í almenningsgarð sem er hér í nágrenninu. Lentum þar í sprengjuárás en trén eru núna að fella hnetur sem eru klæddar inn í broddgelti! Örugglega ekki gott að fá þetta í hausinn.


Hér má sjá broddgelti sem hanga ennþá í trénu.

Annars þá bíðum við bara spennt eftir því að skólinn byrjar. Við setjum síðan inn myndir frá skólanum og ef við skildum finna íbúð þá verður það sett strax inn á bloggið :)
Bless í bili!

5 skilaboð - September 21st, 2008

Komin til London

Þá erum við flutt til London og hér verður bloggað um ýmislegt sem drífur á daga okkar hér úti :) Við erum ekki komin með íbúð ennþá en við erum í óða önn að leita og höfum ekki gert mikið annað síðan við komum út. Það er ýmislegt í boði og ýmislegt sem við höfum skoðað hingað til, t.d. íbúðir sem litu rosa vel út og allt spikk og span en allt of litlar, minni en Stúfholtið!! sem er ótrúlegt. Við höfum líka séð íbúðir sem voru ekki bara minni en Stúfholtið heldur svo skítugar og morknar að hamstur myndi ekki einu sinni sætta sig við að búa þar.

Við erum líka búin að lenda í nokkrum “svindlurum” og fólki sem við vorum ekki viss hvort að væru svindlarar eða bara skrítið. Við áttum til dæmis að fylla út umsókn sem sjá má hér að neðan. Síðasta spurningin á umsókninni varð til þess að við hættum að tala meira við þetta fólk. Takið líka eftir því hvernig textinn er skrifaður efst og líka slagorðinu í endann haha. En við erum ekki búin að missa móðinn ennþá, við erum vongóð og höldum áfram að leita :) Við erum núna í íbúðinni hennar Evu, sem er dóttir vinkonu mömmu Sólar og á heima í London, við fáum að vera þar til bráðabirgða á meðan við leitum. 

En annars… þá munum við blogga aðallega um mat í þetta sinn.


Við verðum að sýna kökuna sem mamma Sólar bakaði handa okkur í kveðjumatnum heima, hún var svo flott…og hún var ýkt góð! :)

Þegar við komum til London var klukkan orðin svo margt að það var allt lokað nema 
local búðin sem er beint fyrir utan íbúðina hennar Evu. Búðin er lítil og ekki með mikið úrval þannig að við fundum okkur kvöldmat að hætti fátæka stúdentsins, ravioli og spaghetti í dós…


keyptum líka þennan snilldar djús, sem er bara úr vínberjum, ekkert plat…ekkert smá góður, minnir meira að segja smá á rauðvín á bragðið nema bara miklu betra :) Í bakgrunninn má sjá hina flóknu eldamennsku sem átti sér stað þegar myndin var tekin…

En með því að blanda raviolinu og spaghettinu saman og drissa smá osti yfir var þetta orðinn barasta dýrindis máltíð ;)

En við erum búin að finna rosa fínar matvöruverslanir sem eru hér í nágrenninu, Eva benti okkur á hvar er ódýrast að versla inn og hvar er t.d. hægt að fá ódýra og góða ávexti :)
Segjum þetta gott í bili, setjum inn fleiri myndir næst :D

7 skilaboð - September 14th, 2008

Grafiksense Blog

Siggi og Sól blogga um
allt og ekkert.

Grafiksense: Eldri færslur Rss Feed