Sveitabrúðkaup bíóplakat

Fórum í heimsókn niðrá vinnustofu Atla og fengum Hörð til þess að hjálpa okkur við að taka myndir af
bíóplakatinu í góða veðrinu í dag.



Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - August 20th, 2008

Fórum í heimsókn niðrá vinnustofu Atla og fengum Hörð til þess að hjálpa okkur við að taka myndir af
bíóplakatinu í góða veðrinu í dag.



Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - August 20th, 2008

Erum búin að vera að vinna undanfarið að kynningarefni fyrir kvikmyndina Sveitabrúðkaup eftir Valdísi Óskarsdóttur sem verður frumsýnd 28. ágúst, bjuggum til allt prentað efni og fortitlana á sjálfri myndinni. Nú má sjá m.a. bíóplakatið í Sambíóunum og þar sem það hefur verið hengt upp hér og þar um bæinn, þar sem má, og strætóplakötin sem eru með öllum 16 karakterunum úr myndinni. Fórum á stúfana í gær og tókum myndir af nokkrum strætóskýlum og skiltum
Munum síðan fá síðar í vikunni fínar myndir af bíóplakatinu, munum setja þær inn líka þegar þær eru tilbúnar








2 skilabod Skrifadi Sól - August 18th, 2008

Hér koma nokkrar myndir frá áðurnefndu ferðalagi sem við fórum austur á land í lok júlí. Keyrðum ásamt fjölskyldu Sigga austur í Skriðdal, en þar vorum við í 5 daga í góðu yfirlæti hjá vinafólki forleldra Sigga. Bærinn þeirra er risastórt norskt bjálkahús (sem við erum ekki með mynd af! >.<) á tveimur hæðum með gufubaði, tveimur hestum og kisu sem heitir Pus (þýðir Kisa á norsku)

Keyrðum á Skógarfoss og gengum upp á hann, en þar uppi var svo mikið rok að við urðum að halda okkur í grindverkið til að fjúka ekki fram af.

Þessi kýr á heima fyrir neðan Skógarfoss, hún kom og heilsaði upp á okkur.

Stoppuðum í Vík í Mýrdal…

…og fórum að vaða í sjónum.

Þegar við komum til Jökulsárlóns var klukkan orðin ca 12 að miðnætti.

Hérna erum við komin í Skriðdalinn. Hrafnkell, Ísold og afi Tóti gefa Hróki, öðrum hestinum á bænum, brauð að éta. Hrókur fékk síðan straum í nefið þegar Ísold hélt með annari hendinni í rafmagnsgirðinguna og klappaði honum með hinni.

Kisan Pus, það mátti ekki klappa henni of mikið í einu, þá beit hún þig í hendina.

Á bænum var traktor sem sumir voru sérstaklega hrifnir af, Hrafnkell fékk að keyra um og grafa á honum með Adda Óla.

Síðan var farið einn daginn í hestaferð í Hallormsstaðarskógi, hér má sjá systurnar Melkorku og Ísold sitja á hestum, Guðrúnu Eddu og í bakgrunni er Addi Óli með Hrafnkel.
Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - August 12th, 2008

Siggi er orðinn 27 ára í dag! Húrra! Gróf upp þessa mynd af honum frá því við vorum á 3ja ári í LHÍ, þarna var hann að
hjálpa mér með lokaverkefnið mitt og pósaði sem jólasveinn út í glugga…ég hló svo mikið þegar ég sá þessa mynd að ég varð
að pósta henni
5 skilabod Skrifadi Sól - August 11th, 2008

Þá styttist óðum í að við flytjum til London, fengum áminningu um það í pósti um daginn en það voru bréf frá skólanum með upplýsingum um skólasetninguna. Auk þess fylgdi með smá heimavinna fyrir fyrsta daginn, en það er að finna til 5 myndir og semja 50 orða texta um okkur, verður spennandi að sjá hverjir eru með manni í bekk!
Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - August 7th, 2008
Jæja, búin að vera smá bloggtregða í gangi hjá okkur, en við erum líka búin að vera m.a. á ferðalagi um landið, vonandi tekst okkur að redda myndum frá ferðinni sem allra fyrst og munum þá skella nokkrum hér inn á. Annars þá fundum við þetta video á síðunni hans Hemma, en þetta er tónlistarvideo við lag með frönsku söngkonunni Yelle, það er með einum flottasta dansi sem ég hef séð lengi! Mig langar að kunna að dansa svona…auk þess er lagið mjög skemmtilegt og Hrafnkell Orri, sonur Adda Óla, er sérstaklega hrifinn af því. Hann vill helst heyra “stelpulagið spilað hátt”, mælum með því
Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - July 28th, 2008

Þetta hús, sem er sennilega ekki mikið minna en íbúðin okkar…kannski aaaðeins minna, stendur inn á Reykjavíkurflugvelli. Það er eitthvað við appelsínugula litinn og kassa mynstrið sem gerir þetta hús svo skrítið og fínt, sérstaklega ef þú ímyndar þér að það standi eitt út á miðju túni einhvers staðar út í sveit í stað flugvallar
Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - June 15th, 2008

Við héldum að Opal væri komið í nýjar umbúðir en þá var það bara vanillusykur að reyna að vera Opal pakki.
Skildu eftir skilabod Skrifadi Sól - June 11th, 2008

Siggi gerði þetta samt ekki, hann er bara til að sýna stærðina haha
1 skilabod Skrifadi Sól - May 25th, 2008