Stelpulagið
Skrifadi Sól - July 28th, 2008
Jæja, búin að vera smá bloggtregða í gangi hjá okkur, en við erum líka búin að vera m.a. á ferðalagi um landið, vonandi tekst okkur að redda myndum frá ferðinni sem allra fyrst og munum þá skella nokkrum hér inn á. Annars þá fundum við þetta video á síðunni hans Hemma, en þetta er tónlistarvideo við lag með frönsku söngkonunni Yelle, það er með einum flottasta dansi sem ég hef séð lengi! Mig langar að kunna að dansa svona…auk þess er lagið mjög skemmtilegt og Hrafnkell Orri, sonur Adda Óla, er sérstaklega hrifinn af því. Hann vill helst heyra “stelpulagið spilað hátt”, mælum með því
skrifa skilaboð hér