Ferðin austur

Skrifadi Sól - August 12th, 2008


Hér koma nokkrar myndir frá áðurnefndu ferðalagi sem við fórum austur á land í lok júlí. Keyrðum ásamt fjölskyldu Sigga austur í Skriðdal, en þar vorum við í 5 daga í góðu yfirlæti hjá vinafólki forleldra Sigga. Bærinn þeirra er risastórt norskt bjálkahús (sem við erum ekki með mynd af! >.<) á tveimur hæðum með gufubaði, tveimur hestum og kisu sem heitir Pus (þýðir Kisa á norsku)


Keyrðum á Skógarfoss og gengum upp á hann, en þar uppi var svo mikið rok að við urðum að halda okkur í grindverkið til að fjúka ekki fram af.


Þessi kýr á heima fyrir neðan Skógarfoss, hún kom og heilsaði upp á okkur.


Stoppuðum í Vík í Mýrdal…


…og fórum að vaða í sjónum.


Þegar við komum til Jökulsárlóns var klukkan orðin ca 12 að miðnætti.


Hérna erum við komin í Skriðdalinn. Hrafnkell, Ísold og afi Tóti gefa Hróki, öðrum hestinum á bænum, brauð að éta. Hrókur fékk síðan straum í nefið þegar Ísold hélt með annari hendinni í rafmagnsgirðinguna og klappaði honum með hinni.


Kisan Pus, það mátti ekki klappa henni of mikið í einu, þá beit hún þig í hendina.


Á bænum var traktor sem sumir voru sérstaklega hrifnir af, Hrafnkell fékk að keyra um og grafa á honum með Adda Óla.


Síðan var farið einn daginn í hestaferð í Hallormsstaðarskógi, hér má sjá systurnar Melkorku og Ísold sitja á hestum, Guðrúnu Eddu og í bakgrunni er Addi Óli með Hrafnkel.

skrifa skilaboð hér

Skylda

Skylda, Falið