Sumarhjól

Ég hef lengi látið mig dreyma um að eignast alvöru stelpuhjól, svona gamaldags með mjóum dekkjum og stöngina niðri. Sá draumur varð að veruleika um helgina þegar við Siggi skelltum okkur upp í bústað fjölskyldunnar hans í Kjósinni og ákváðum að gera upp gamla hjólið hennar Nönnu sem er yfir 50 ára gamalt. Það var á sprungnum dekkjum og orðið ansi ryðgað, en við keypum nýjar gjarðir og ný dekk og Siggi handyman var ekki lengi að vippa nýju dekkjunum á. Síðan tókst mér að pússa nánast allt ryðið af og smurði hjólið.

Svona lítur gripurinn út eftir andlitslyftinguna!

Þetta hjól er að sjálfsögðu með enga gíra og ég er ennþá að venjast því að það eru ekki handbremsur! Við Siggi hjóluðum í vinnuna í dag, en hann eignaðist gamla fjallahjólið mitt sem er svart með strákastöng, handbremsum, engu bretti og 21 gír
2 skilabod Skrifadi Sól - May 5th, 2008









