Hér er að finna upplýsingar sem nýtast í íþróttaþjálfun og íþróttakennslu fatlaðra. Upplýsingarnar eru fyrir þjálfara/kennara. Fram koma almennar upplýsingar um íþróttaþjálfun fatlaðra og upplýsingar um algengar fatlanir.
Einnig er hér að finna upplýsingar um hvaða fylgiraskanir geta fylgt hverri fötlun og hvað ber að hafa í huga varðandi þær þegar kemur að þjálfun. Farið er yfir öryggisatriði og ýmis heilræði sem varða kennsluna.